2003-03-15 00:39:17# 128. lþ. 102.34 fundur 715. mál: #A tollalög# (landbúnaðarhráefni) frv. 80/2003, SI (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 102. fundur, 128. lþ.

[24:39]

Sigríður Ingvarsdóttir (andsvar):

Þáltill. gekk í meginatriðum út á það sama. Þáltill. gekk út á það að auka tollkvóta svo að hægt væri að flytja hingað inn hreindýrakjöt. Eftir ábendingar frá landbrn., fjmrn. og utanrrn. var valin frekar sú leið sem hér er farin og þetta frv. liggur nú fyrir. Eftir að hafa setið vel yfir þessu máli og landbn. hefur farið yfir þetta þá tel ég ekki frekari þörf á því.