Halldór Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Ég var ekki að rengja hv. þm. Ég var einungis að segja að það væri nánast útúrsnúningur að bera samkeppnisstöðu Flugfélags Norðurlands við Flugleiðir á sínum tíma saman við samkeppnisstöðu Hagkaupa og Bónuss. Stærðarmunurinn á Flugleiðum og Flugfélagi Norðurlands eða stærðarmunurinn á Íslandsflugi og Flugfélagi Norðurlands í sambandi við innanlandsflug var þvílíkur að það er auðvitað ekki hægt. En ég er ekkert undrandi á að Samkeppnisstofnun hafi komist að þeirri niðurstöðu að Flugfélag Norðurlands hafi verið hagkaup innlendrar flugþjónustu.