Forseti (Halldór Blöndal):
Borist hafa eftirfarandi tilkynningar um kosningu embættismanna alþjóðanefnda:
Í Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins: Einar K. Guðfinnsson formaður og Jóhanna Sigurðardóttir varaformaður.
Í Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins: Lára Margrét Ragnarsdóttir formaður og Ólafur Örn Haraldsson varaformaður.
Í Íslandsdeild NATO-þingsins: Árni R. Árnason formaður og Guðmundur Árni Stefánsson varaformaður.
Í Íslandsdeild Norðurlandaráðs: Ísólfur Gylfi Pálmason formaður og Sigríður Jóhannesdóttir varaformaður.
Í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins: Einar Oddur Kristjánsson formaður og Hjálmar Árnason varaformaður.
Í Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA: Vilhjálmur Egilsson formaður og Kristinn H. Gunnarsson varaformaður.
Í Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál: Sigríður A. Þórðardóttir formaður og Magnús Stefánsson varaformaður.
Í Íslandsdeild þings Vestur-Evrópusambandsins: Kristján Pálsson formaður og Katrín Fjeldsted varaformaður.
Í Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu: Magnús Stefánsson formaður og Ásta R. Jóhannesdóttir varaformaður.