Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):
Herra forseti. Ég vil endurtaka það sem ég hef áður sagt um mikilvægi þessa máls og þörfina á því að vanda þennan undirbúning vel. Ég tek undir að það er sjálfsagt að nýta áhuga þann sem er í samfélaginu á þessum málum og ég hef orðið var við hann og átt viðtöl við ýmsa aðila sem hafa sýnt þessu máli sérstakan áhuga.
Eins og kom fram í svari mínu við fyrirspurninni er landlæknir að semja tillögur í þessu efni, hvernig að þessu verður staðið, hvað yrði hratt farið og þær tillögur koma til mín til frekari ákvarðanatöku.
Af þeim ástæðum hefur ekki verið settur enn þá verðmiði á þetta mál. Verðmiði á málið mun fylgja þeim tillögum sem koma frá landlækni og ég verð þá að kynna það á þeim tíma sem það liggur fyrir. Ég verð að kynna það fjárveitingavaldinu og ríkisstjórn, en þessi verðmiði liggur ekki fyrir núna. Það eru því ekki fjárveitingar í fjárlagafrv. núna varðandi þetta verkefni, en þegar ákveðið er hvernig að þessu verður staðið og hve hratt farið verður í þetta, þá kemur í ljós hver fjárþörfin er. Ég endurtek að ég mun kynna þetta þegar það liggur fyrir.