Úrvinnslugjald

Föstudaginn 13. desember 2002, kl. 10:45:59 (2731)

2002-12-13 10:45:59# 128. lþ. 57.3 fundur 337. mál: #A úrvinnslugjald# frv. 162/2002, KolH (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 57. fundur, 128. lþ.

[10:45]

Kolbrún Halldórsdóttir:

Herra forseti. Þingmenn Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs styðja hugmyndafræði þessa máls. Við gagnrýnum þó að ekki skuli hafa náð fram að ganga að neytendur og félög, frjáls félagasamtök sem starfa á sviði umhverfis- og náttúruverndar, skyldu eignast fulltrúa í stjórn Úrvinnslusjóðs. Þó að við gagnrýnum og séum andvíg því hvernig stjórnin er skipuð samkvæmt frv. styðjum við hugmyndafræði málsins og styðjum því málið.