Fundargerð 129. þingi, 3. fundi, boðaður 2003-05-27 19:50, stóð 19:50:00 til 21:56:22 gert 27 22:1
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

3. FUNDUR

þriðjudaginn 27. maí,

kl. 7.50 síðdegis.

Dagskrá:


Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.

[19:51]

Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hafði 20 mín. til framsögu en aðrir þingflokkar en flokkur forsætisráðherra 12 mín. í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir 6 mín. og í hinni þriðju 5 mín.

Röð flokkanna í öllum umferðum var þessi: Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Framsóknarflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð og Frjálslyndi flokkurinn.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voru Davíð Oddsson forsrh. í fyrstu umferð, Drífa Hjartardóttir, 5. þm. Suðurk., í annarri umferð og Einar K. Guðfinnsson, 4. þm. Norðvest., í þriðju umferð.

Ræðumenn Samfylkingarinnar voru í fyrstu umferð Össur Skarphéðinsson, 1. þm. Reykv. n., Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, 5. þm. Reykv. n., í annarri umferð, og Katrín Júlíusdóttir, 9. þm. Suðvest., í þriðju umferð.

Fyrir Framsóknarflokk töluðu Árni Magnússon félmrh. í fyrstu umferð, í annarri umferð Dagný Jónsdóttir, 8. þm. Norðaust., og í þriðju umferð Birkir J. Jónsson, 9. þm. Norðaust.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna -- grænt framboð voru Steingrímur J. Sigfússon, 5. þm. Norðaust., í fyrstu umferð, í annarri umferð Kolbrún Halldórsdóttir, 8. þm. Reykv. n., og í þriðju umferð Jón Bjarnason, 8. þm. Norðvest.

Fyrir Frjálslynda flokkinn töluðu Magnús Þór Hafsteinsson, 9. þm. Suðurk., og Sigurjón Þórðarson, 10. þm. Norðvest., í fyrstu umferð, í annarri umferð Gunnar Örlygsson, 10. þm. Suðvest., og Guðjón A. Kristjánsson, 5. þm. Norðvest., í þriðju umferð.

Fundi slitið kl. 21:56.

---------------