133. löggjafarþing — 70. fundur, 13. feb. 2007.
rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu.
542. mál
Forseta hefur borist svohljóðandi bréf frá Ögmundi Jónassyni, formanni þingflokks Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs:
„Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs óskar eftir því, sbr. 3. mgr. 55. gr. þingskapa, að ræðutími við 1. umr. 16. dagskrármálsins, Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu, verði tvöfaldaður vegna mikilvægis málsins.“