Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 516, 135. löggjafarþing 237. mál: kjararáð (úrskurðarvald ráðsins).
Lög nr. 168 21. desember 2007.
Verkefni kjararáðs er að ákveða laun og starfskjör þjóðkjörinna manna, dómara, ráðherra, ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra í Stjórnarráði Íslands, forstöðumanna ríkisstofnana og annarra ríkisstarfsmanna sem svo er háttað um að þau geta ekki ráðist með samningum á venjulegan hátt vegna eðlis starfanna eða samningsstöðu.
Þingskjal 516, 135. löggjafarþing 237. mál: kjararáð (úrskurðarvald ráðsins).
Lög nr. 168 21. desember 2007.
Lög um breyting á lögum um kjararáð, nr. 47/2006, með síðari breytingum.
1. gr.
1. gr. laganna orðast svo:Verkefni kjararáðs er að ákveða laun og starfskjör þjóðkjörinna manna, dómara, ráðherra, ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra í Stjórnarráði Íslands, forstöðumanna ríkisstofnana og annarra ríkisstarfsmanna sem svo er háttað um að þau geta ekki ráðist með samningum á venjulegan hátt vegna eðlis starfanna eða samningsstöðu.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 13. desember 2007.