Tilkynning um úrsögn úr þingflokki

Mánudaginn 17. ágúst 2009, kl. 15:02:39 (4082)


137. löggjafarþing — 52. fundur,  17. ág. 2009.

tilkynning um úrsögn úr þingflokki.

[15:02]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur svohljóðandi bréf frá hv. 9. þm. Reykv. n., Þráni Bertelssyni, dagsett í dag, 17. ágúst:

„Ég hef sagt mig úr þingflokki Borgarahreyfingarinnar og slitið samstarfi við fólk sem telur orðheldni vera til marks um alvarlega heilabilun.

Ég mun starfa sem óháður þingmaður og vinna í anda stefnuskrár og kosningaloforða Borgarahreyfingarinnar hér eftir sem hingað til.“