Ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta

Föstudaginn 21. ágúst 2009, kl. 15:01:32 (4455)


137. löggjafarþing — 56. fundur,  21. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[15:01]
Horfa

Forseti (Siv Friðleifsdóttir):

Forseti mun athuga hvort hægt sé að ná í forustumenn ríkisstjórnarflokkanna. Forseti veit að hæstv. forsætisráðherra er á svæðinu og mun gera ráðstafanir til að athuga hvort hæstv. forsætisráðherra geti komið og hefur einnig beðið um að það verði kannað hvort hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson sé á svæðinu.