Heimsókn forseta Eistlands

Fimmtudaginn 10. júní 2010, kl. 13:51:32 (0)


138. löggjafarþing — 135. fundur,  10. júní 2010.

heimsókn forseta Eistlands.

[13:51]
Horfa

Forseti (Árni Þór Sigurðsson):

Ég vek athygli hv. alþingismanna á því að forseti Eistlands, herra Toomas Hendrik Ilves, er staddur á þingpöllum ásamt fylgdarliði. Forseti Eistlands er í heimsókn í Alþingishúsinu í tengslum við opinbera heimsókn hans hingað til lands í boði forseta Íslands.

Ég vil fyrir hönd Alþingis bjóða forseta Eistlands, herra Toomas Hendrik Ilves, velkominn í Alþingishúsið og ég vænti þess að heimsókn hans til Íslands verði til þess að styrkja enn frekar þau góðu tengsl sem eru milli landanna.

Alþingi vottar forseta Eistlands og eistnesku þjóðinni vináttu og virðingu. Ég bið hv. alþingismenn að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]