139. löggjafarþing — 16. fundur, 20. okt. 2010.
heilbrigðisþjónusta í heimabyggð.
41. mál
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna og svörin. Ég mun fyrir mitt leyti í starfi heilbrigðisnefndar og meðförum nefndarinnar á þessari tillögu taka tillit til þessara athugasemda þingmannsins og þessara hugmynda og eins og ég sagði áðan gera það sem ég get til að þetta mál fái afgreiðslu á þessu þingi.