Sjávarútvegsstefna ESB

Mánudaginn 29. nóvember 2010, kl. 15:13:31 (0)


139. löggjafarþing — 36. fundur,  29. nóv. 2010.

sjávarútvegsstefna ESB.

[15:13]
Horfa

Íris Róbertsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir svörin en það fór eins og við var að búast, hæstv. utanríkisráðherra svaraði ekki spurningunni. Ég ítreka spurninguna en kannski ætti ég að umorða hana: Er hæstv. utanríkisráðherra enn þá þeirrar skoðunar að sennilega þurfum við engar undanþágur frá sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins?