vernd og orkunýting landsvæða.
Hæstv. forseti. Þetta verður stutt. Það er rétt að ég sat í verkefnisstjórninni og það hefur margoft komið fram í þingsalnum. Ég áttaði mig ekki alveg á tilvísuninni í ræðu hv. þingmanns og spyr því: Telur hv. þingmaður að það að ég var skipuð í verkefnisstjórnina á sínum tíma þegar ég var sveitarstjóri í Rangárþingi eystra sem og Svanfríður Jónasdóttir, fyrrverandi alþingismaður Samfylkingarinnar, geri það að verkum að niðurstaða verkefnisstjórnar hafi ekki verið fagleg?