144. löggjafarþing — 48. fundur, 12. des. 2014.
almannatryggingar o.fl.
459. mál
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Helga Hjörvar fyrir ágæta ábendingu. Málin sem við ræðum hér eru gríðarlega flókin og umsvifamikil og það er mikil vinna að fara í gegnum það allt eins og við þekkjum öll hérna inni. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætar ábendingar og tek þær með mér sem veganesti í þá vinnu sem fram undan er.