Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 69. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 81 — 69. mál.
um brottfall laga nr. 35/1991, um listamannalaun.
Í 15. gr. laga nr. 57/2009, um listamannalaun, er kveðið á um að lögin öðlist gildi við birtingu þeirra og að fyrirmæli þeirra um úthlutun úr launasjóðum listamanna komi til framkvæmda á árinu 2010. Af lagatæknilegum ástæðum er því lagt til að ákvæði eldri laga um listamannalaun falli brott. Jafnframt er lagt til að tilvísun til þeirra laga í leiklistarlögum verði breytt.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 81 — 69. mál.
Frumvarp til laga
um brottfall laga nr. 35/1991, um listamannalaun.
Frá menntamálanefnd.
1. gr.
Lög nr. 35/1991, um listamannalaun, falla brott.2. gr.
Í stað tilvísunarinnar „nr. 35/1991“ í 3. mgr. 14. gr. leiklistarlaga, nr. 138/1998, kemur: nr. 57/2009.3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Greinargerð.