Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 126. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 139  —  126. mál.




Fyrirspurn


til fjármálaráðherra um starfsemi skattstofa á landsbyggðinni.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.


     1.      Hefur verið ákveðið eða eru uppi áform um að leggja niður skattstofur á landsbyggðinni? Ef svo er, hverjar?
     2.      Eru áform um að auka verkefni skattstofa á landsbyggðinni, til dæmis með því að færa til þeirra umsýslu og framkvæmd einstakra málaflokka á sviði skattamála?