Þingskjal 751 — 414. mál.
Frumvarp til laga
um breytingar á ýmsum lögum vegna framlengingar á gildistíma samkomulags milli ríkis og sveitarfélaga um eflingu tónlistarnáms (gildistími bráðabirgðaákvæða o.fl.).
(Lagt fyrir Alþingi á 143. löggjafarþingi 2013–2014.)
I. KAFLI
Breyting á lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, nr. 75/1985,
með síðari breytingum.
1. gr.
Í samræmi við samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms frá 13. maí 2011, sem framlengt hefur verið til 31. desember 2014, með viðauka frá 5. mars 2014, greiðir ríkissjóður árlegt framlag á árunum 2011, 2012, 2013 og 2014 í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga til að standa straum af kennslukostnaði að viðbættu álagi fyrir stjórnunarkostnað vegna söngnáms á miðstigi og söng- og hljóðfæranáms á framhaldsstigi.
II. KAFLI
Breyting á lögum um námsgögn, nr. 71/2007, með síðari breytingum.
2. gr.
Á fjárlagaárinu 2014 greiðist framlag skv. 1. mgr. 6. gr. af Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, f.h. sveitarfélaga. Í samræmi við samkomulag frá 5. október 2011, um tímabundnar breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, og viðauka við það frá 5. mars 2014, verður framlagið innheimt af úthlutun framlaga Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaga í hlutfalli við íbúafjölda 1. desember á næstliðnu ári.
III. KAFLI
Breyting á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, með síðari breytingum.
3. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 1. málsl. 1. mgr. skal framlag samkvæmt þeirri málsgrein, á fjárlagaárinu 2014, greitt af Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, f.h. sveitarfélaga. Í samræmi við samkomulag frá 5. október 2011, um tímabundnar breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, og viðauka við það frá 5. mars 2014, verður framlagið innheimt af úthlutun framlaga Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaga í hlutfalli við íbúafjölda 1. desember á næstliðnu ári.
IV. KAFLI
Breyting á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum.
4. gr.
V. KAFLI
Breyting á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995,
með síðari breytingum.
5. gr.
Á árinu 2014 greiðir Jöfnunarsjóður sveitarfélaga kostnað sveitarfélaga vegna eftirtalinna verkefna eftir því sem nánar er ákveðið í fylgiskjali með samkomulagi frá 5. október 2011, um tímabundnar breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, og viðauka við það frá 5. mars 2014:
a. Sumardvalarheimilis í Reykjadal, sbr. fjárlagalið 08-809-1.35.
b. Tölvumiðstöðvar fatlaðra, sbr. fjárlagalið 08-809-1.15.
c. Vistheimilisins Bjargs, sbr. fjárlagalið 08-809-1.36.
Í samræmi við samkomulag frá 5. október 2011, um tímabundnar breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, og viðauka við það frá 5. mars 2014, verður kostnaður vegna verkefna skv. 1. mgr. innheimtur af úthlutun framlaga Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaga í hlutfalli við íbúafjölda 1. desember á næstliðnu ári.
6. gr.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Á gildistíma samkomulagsins frá 13. maí 2011 veitti ríkissjóður framlag að fjárhæð 480 millj. kr. á ársgrunni vegna kennslukostnaðar í tónlistarskólum. Á móti skuldbundu sveitarfélög sig til að taka tímabundið yfir ný verkefni frá ríki sem námu 230 millj. kr. á ársgrundvelli samkvæmt samkomulagi frá 5. október 2011. Verkefni þessi voru fjármögnuð á þann hátt að framlög sveitarfélaga voru innheimt af úthlutun framlaga Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaga í hlutfalli við íbúafjölda í samræmi við ákvæði laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með áorðnum breytingum.
Fljótlega kom í ljós að forsendur samkomulagsins um fjölda nemenda voru ekki nógu traustar og stefndu nokkrir af stærstu tónlistarskólum landsins í greiðsluþrot vegna þess að framlög samkvæmt samkomulaginu voru töluvert langt frá því að standa undir kennslukostnaði í þeim skólum. Eftir viðræður sveitarfélaga við fulltrúa þriggja ráðuneyta ákvað ríkisstjórnin að hækka greiðslu ríkisins um 40 millj. kr. á ári, sem kom að nokkru til móts við rekstrarvanda þessara tónlistarskóla. Jafnframt fór fram endurskoðun á reglum jöfnunarsjóðs sem leiddi til þeirrar breytingar að framlög til sveitarfélaga tóku mið af veittu kennslumagni sem nemendur fá í stað þess að vera föst viðmiðunarfjárhæð fyrir hvern nemanda.
Af ýmsum ástæðum tókst ekki að hefja viðræður um framlengingu samkomulagsins fyrr en í maí 2013. Drög að viðauka við samkomulagið frá 2011 um eflingu tónlistarnáms lágu fyrir í byrjun júlí en tafir urðu á því að ganga endanlega frá málinu við mennta- og menningarmálaráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið og rann gildistími samkomulagsins því út 31. ágúst sl. án þess að fyrir lægi ákvörðun um fyrirkomulag á yfirstandandi skólaári. Þessi dráttur hafði þó ekki bein áhrif á starfsemi tónlistarskólanna á haustönn 2013 vegna þess að heimild var á fjárlögum ársins 2013 til að greiða framlag ríkisins til áramóta. Á árinu 2014 liggur einnig fyrir heimild á fjárlögum til þess að greiða alls 520 millj. kr. til tónlistarnáms þótt samkomulagið sé fallið úr gildi. Hins vegar er ekki lengur til staðar lagaheimild til þess að draga 230 millj. kr. hlutdeild sveitarfélaga í samkomulaginu frá framlögum jöfnunarsjóðs.
Þar sem nú hefur verið gengið frá viðauka við samkomulagið frá 13. maí 2013 er frumvarp þetta lagt fram á Alþingi. Mikilvægt er að það hljóti samþykki sem fyrst svo hægt verði að tryggja fjármögnun þeirra verkefna sem sveitarfélögin eiga að standa straum af samkvæmt samkomulagi frá 5. október 2011. Um er að ræða eftirtalin lögákveðin verkefni:
1. Fjármögnun Endurmenntunarsjóðs grunnskóla, sbr. bráðabirgðaákvæði II við lög um grunnskóla, nr. 91/2008.
2. Fjármögnun og rekstur námsgagnasjóðs, sbr. 6. gr. laga um námsgögn, nr. 71/2007.
3. Fjármögnun varasjóðs húsnæðismála, sbr. samkomulag frá 23. nóvember 2010.
Í frumvarpi því sem hér er lagt fram er gert ráð fyrir því að fjármögnun framangreindra verkefna verði áfram tímabundið á ábyrgð sveitarfélaga og er fjármögnun þeirra tryggð með því að framlög sveitarfélaga verði innheimt af úthlutun framlaga jöfnunarsjóðs til sveitarfélaga í hlutfalli við íbúafjölda 1. desember á næstliðnu ári. Rétt þykir að taka fram að á grundvelli 2. gr. viðauka samkomulagsins framlengist samkomulagið frá 5. október 2011 til ársloka 2014. Af því leiðir að samkomulag um varasjóð húsnæðismála, frá 23. nóvember 2010, framlengist til jafn langs tíma. Af þeirri ástæðu er í 4. gr. frumvarps þessa gert ráð fyrir að framlag sveitarfélaga til varasjóðsins verði samtals 50 millj. kr. þótt í viðauka samkomulagsins sé tilgreind lægri fjárhæð, 30 millj. kr. sem er framlag ríkisins til þessa verkefnis samkvæmt tilgreindu samkomulagi.
Önnur verkefni, sem sveitarfélögin fjármagna tímabundið, kalla ekki á breytingar á sérlögum en Jöfnunarsjóður sveitarfélaga greiðir tímabundið kostnað við þau verkefni fyrir hönd sveitarfélaga og er fjármögnun þeirra tryggð með sama hætti og að framan greinir. Um er að ræða eftirfarandi verkefni:
– Sumardvalarheimilis í Reykjadal, sbr. fjárlagalið 08-809-1.35
– Tölvumiðstöðvar fatlaðra, sbr. fjárlagalið 08-809-1.15
– Vistheimilisins Bjargs, sbr. fjárlagalið 08-809-1.36
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Um 2. gr.
Um 3. gr.
Um 4. gr.
Um 5. gr.
– Sumardvalarheimilis í Reykjadal, sbr. fjárlagalið 08-809-1.35.
– Tölvumiðstöðvar fatlaðra, sbr. fjárlagalið 08-809-1.15.
– Vistheimilisins Bjargs, sbr. fjárlagalið 08-809-1.36.
Verkefnin sem hér um ræðir tengjast samkomulagi sem tók gildi 1. janúar 2011 um yfirfærslu þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga en af ýmsum ástæðum voru þessi verkefni þá undanskilin við gerð heildarsamkomulags um þá verkefnatilfærslu. Gengið er út frá því að fjárhæðir til framangreindra verkefna verði í samræmi við fylgiskjal með umræddu samkomulagi frá 5. október 2011 og viðauka við það frá 5. mars 2014 og að Jöfnunarsjóður innheimti kostnað vegna þeirra af úthlutun framlaga Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaga í hlutfalli við íbúafjölda 1. desember á næstliðnu ári.
Um 6. gr.
Fylgiskjal I.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti:
Mat á áhrifum frumvarpsins á fjárhag sveitarfélaga
skv. 129. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011.
Á árinu 2014 veitir ríkissjóður framlag að fjárhæð 520 millj. kr. til tónlistarnáms á vegum sveitarfélaga sem ætlað er að gera nemendum kleift að stunda hljóðfæranám á framhaldsstigi og söngnám á mið- og framhaldsstigi, óháð búsetu. Á móti skuldbinda sveitarfélög sig til að taka tímabundið yfir eftirfarandi verkefni frá ríki sem nemur 230 millj. kr. á ársgrundvelli, sbr. viðauka, dags. 5. mars 2014, við samkomulag frá 5. október 2011, sbr. 2.–4. gr. frumvarpsins. Önnur verkefni, sem sveitarfélögin fjármagna tímabundið, kalla ekki á breytingar á sérlögum en í 5. gr. frumvarpsins er kveðið á um að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga greiði kostnað við þau verkefni fyrir hönd sveitarfélaga og innheimti kostnað vegna þeirra af úthlutuðum framlögum til sveitarfélaga.
Fylgiskjal II.
Fjármála- og efnahagsráðuneyti,
skrifstofa opinberra fjármála:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna
framlengingar á gildistíma samkomulags milli ríkis og sveitarfélaga
um eflingu tónlistarnáms (gildistími bráðabirgðaákvæða o.fl.).
Samkomulagið felur í sér að framlag ríkissjóðs til tónlistarfræðslu verði 520 m.kr. á árinu 2014 í samræmi við gildandi fjárlög. Ekki verður um frekari framlög að ræða úr ríkissjóði á gildistíma samkomulagsins. Ríkissjóður greiðir framlagið til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem greiðir styrki samkvæmt tilteknum úthlutunarreglum til sveitarfélaga vegna tónlistarnáms í hljóðfæraleik á framhaldsstigi og söngnáms á mið- og framhaldsstigi óháð búsetu nemenda. Samband íslenskra sveitarfélaga annast, í samvinnu við Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, eftirlit með umfangi verkefnisins.
Sveitarfélög skuldbinda sig á móti áfram til að standa tímabundið straum af verkefnum sem áður voru fjármögnuð af ríkinu og nema framlög vegna þeirra 230 m.kr. á ársgrundvelli. Að auki felur framlenging samkomulagsins í sér að samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um Varasjóð húsnæðismála, frá 23. október 2010, er framlengt um eitt ár og á þeim grundvelli er gert ráð fyrir því að sveitarfélögin greiði að auki 20 m.kr. til varasjóðsins, líkt og fram kemur í 4. gr. frumvarpsins. Miðað er við að framlög sveitarfélaga renni til eftirfarandi verkefna á árinu 2014: Tölvumiðstöðvar fatlaðra, Endurmenntunarsjóðs grunnskóla, Námsgagnasjóðs, Sumardvalarheimilisins í Reykjadal, Vistheimilisins Bjargs og Varasjóðs húsnæðismála.
Varðandi frekari umfjöllun um hvern og einn lið frumvarpsins er vísað til fyrri umsagnar vegna sama máls sem fylgdi með frumvarpi um þetta málefni á þingskjali 491 á 140. löggjafarþingi.
Verði frumvarp þetta óbreytt að lögum verða útgjöld ríkisins vegna verkefnisins þau sömu og gert er ráð fyrir í fjárlögum fyrir árið 2014, eða 520 m.kr. Á móti kemur að sveitarfélög fjármagna áfram af sínum tekjustofnum framlög sem samtals nema um 230 m.kr. vegna verkefna sem færast í þeirra umsjá.