Ferill 57. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 57 — 57. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 24/2000, um kosningar til Alþingis,
með síðari breytingum (persónukjör þvert á flokka).
Flm.: Valgerður Bjarnadóttir, Birgitta Jónsdóttir, Guðmundur Steingrímsson,
Helgi Hjörvar, Jón Þór Ólafsson, Óttarr Proppé.
1. gr.
Kosning utan kjörfundar fer svo fram að kjósandi stimplar eða ritar bókstaf þess lista eða nafn eða nöfn þeirra frambjóðenda af listum sem hann vill kjósa, allt upp í tvöfalda tölu þingmanna í viðkomandi kjördæmi.
2. gr.
Kjósandi greiðir atkvæði á þann hátt að hann markar með ritblýi kross í ferning fyrir framan bókstaf lista á kjörseðlinum eða setur kross fyrir framan eitt nafn eða fleiri á framboðslista eða -listum, allt upp í tvöfalda tölu þingmanna í viðkomandi kjördæmi.
Hver kjósandi hefur eitt atkvæði. Skipti hann atkvæði sínu á fleiri en einn frambjóðanda hljóta þeir sama brot atkvæðis.
3. gr.
b. ef hvorki verður séð við hvern lista er merkt eða hverja frambjóðendur merkt er við eða ef ekki verður séð með vissu hvort það sem stendur á utankjörfundarseðli getur átt við nokkurn af listum sem í kjöri eru eða nokkurn eða nokkra af frambjóðendum,
c. ef merkt er við fleiri listabókstafi en einn eða skrifaðir fleiri en einn listabókstafur á utankjörfundarseðil, enda sé ekki merkt við neina frambjóðendur.
4. gr.
Í kjördæmi skal telja atkvæði framboðslista með eftirfarandi hætti:
1. Fyrst skal telja þá kjörseðla þar sem merkt er við listabókstaf en engar merkingar gerðar við einstaka frambjóðendur.
2. Þá skal telja þá kjörseðla þar sem merkt hefur verið við einstaka frambjóðendur, hvort sem auk þess hefur verið merkt við lista eða ekki. Á hverjum þessara kjörseðla skal telja saman atkvæði eða atkvæðisbrot greidd einstökum frambjóðendum á sama lista, sbr. 2. mgr. 82. gr.
3. Atkvæðatala lista er samtala atkvæða eða atkvæðisbrota greidd listanum skv. 1. og 2. tölul.
5. gr.
Til þess að finna hverjir frambjóðendur hafa náð kosningu á hverjum lista skal landskjörstjórn reikna frambjóðendunum atkvæðatölu á eftirfarandi hátt:
1. Ákvarða skal röðunartölu hvers lista og er hún tvöföld tala þeirra sæta er komu í hlut listans samkvæmt kosningaúrslitum, sbr. 107. og 108. gr.
2. Skipta skal atkvæði óbreytts kjörseðils, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 105. gr., milli efstu manna viðkomandi lista, jafnmargra og nemur röðunartölu listans, eins og greinir í 3. og 4. tölul.
3. Frambjóðandi sem skipar 1. sæti á óbreyttum kjörseðli, sbr. 2. tölul., fær eina hlutdeild í atkvæðinu. Sá í 2. sæti fær það brot úr atkvæðishlutdeild að í nefnara sé röðunartala en í teljara sú tala að frádregnum einum. Síðan lækkar teljarinn um einn við hvert sæti. Atkvæðinu skal síðan skipt á milli þeirra sem tilgreindir eru í 2. tölul. í hlutfalli við atkvæðishlutdeildirnar.
4. Leggja skal saman persónuleg atkvæði eða atkvæðisbrot hvers frambjóðanda, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 105. gr. Við þá útkomutölu skulu lögð atkvæði frambjóðandans skv. 2. tölul. Útkoman er atkvæðatala frambjóðandans.
Sá frambjóðandi á hverjum lista sem fær hæsta atkvæðatölu skv. 1. mgr. hlýtur 1. sæti listans. Sá frambjóðandi sem fær næsthæsta atkvæðatölu hlýtur 2. sætið og þannig koll af kolli uns lokið er úthlutun þingsæta svo og sæta varamanna. Nú fá tveir eða fleiri frambjóðendur jafnháa atkvæðatölu og skal þá hluta um röð þeirra á listanum.
6. gr.
Greinargerð.
Hér er lagt til að kosningalögum verði svo breytt að kjósandi eigi þrjá möguleika á því hvernig hann nýtir atkvæði sitt í kjörklefanum: 1) að merkja við listabókstaf, enda fellir hann sig þá við þá röð sem fram hefur verið sett á röðuðum lista, 2) að merkja við einn frambjóðanda, og nýtist þá atkvæðið þeim lista sem frambjóðandinn sem atkvæðið hlýtur á sæti á, og 3) að kjósandi eigi rétt á að skipta atkvæði sínu á svo marga frambjóðendur sem fjöldi þingmanna í viðkomandi kjördæmi segir til um og geti hann þá kosið einstaklinga af hvaða lista sem vera skal. Kjósi menn með þeirri aðferð skiptast atkvæði milli lista í þeim hlutföllum sem kjósandi hefur ákveðið.
Setjum svo að atkvæði greidd lista skiptist þannig að 3.000 séu greidd listanum einum, en ekki merkt við frambjóðendur, en 3.300 atkvæði hafi verið greidd frambjóðendum listans persónulega. Samtalan er 6.300 atkvæði sem ráða því hversu mörg þingsæti listinn hlýtur. Niðurstaða gæti verið að hún gæfi tvö þingsæti. Þrjú þúsund atkvæði greidd listanum skiptust sem persónuleg atkvæði á hina fjóra efstu menn listans samkvæmt ákvæðum frumvarpsins. Þeir hinir sömu gætu hafa fengið einhver hinna 3.300 persónulegu atkvæða að auki. Hafi hins vegar frambjóðandi neðar á listanum fengið fleiri persónuleg atkvæði en samanlögð atkvæði einhvers þessara fjögurra efstu, þá flyst hann ofar og gæti hreppt þingsæti. Sjá eftirfarandi dæmi:
Dæmi I.
X Listi A | Listi B | Listi C | Listi D | Listi F |
Nafn | Nafn | Nafn | Nafn | Nafn |
Nafn | Nafn | Nafn | Nafn | Nafn |
Nafn | Nafn | Nafn | Nafn | Nafn |
Nafn | Nafn | Nafn | Nafn | Nafn |
Nafn | Nafn | Nafn | Nafn | Nafn |
Nafn | Nafn | Nafn | Nafn | Nafn |
Nafn | Nafn | Nafn | Nafn | Nafn |
Nafn | Nafn | Nafn | Nafn | Nafn |
Nafn | Nafn | Nafn | Nafn | Nafn |
Nafn | Nafn | Nafn | Nafn | Nafn |
Dæmi II.
Listi A | Listi B | Listi C | Listi D | Listi F |
Nafn | Nafn | Nafn | Nafn | Nafn |
Nafn | Nafn | Nafn | Nafn | Nafn |
Nafn | Nafn | Nafn | Nafn | Nafn |
Nafn | Nafn | Nafn | Nafn | Nafn |
Nafn | Nafn | Nafn | Nafn | Nafn |
Nafn | Nafn | Nafn | Nafn | Nafn |
Nafn | X Nafn | Nafn | Nafn | Nafn |
Nafn | Nafn | Nafn | Nafn | Nafn |
Nafn | Nafn | Nafn | Nafn | Nafn |
Nafn | Nafn | Nafn | Nafn | Nafn |
Dæmi III.
Listi A | Listi B | Listi C | Listi D | Listi F |
Nafn | Nafn | X Nafn | X Nafn | Nafn |
Nafn | Nafn | Nafn | X Nafn | Nafn |
Nafn | X Nafn | Nafn | Nafn | X Nafn |
Nafn | Nafn | Nafn | Nafn | Nafn |
Nafn | Nafn | X Nafn | Nafn | X Nafn |
Nafn | Nafn | Nafn | X Nafn | Nafn |
X Nafn | Nafn | X Nafn | Nafn | Nafn |
Nafn | Nafn | Nafn | Nafn | Nafn |
Nafn | Nafn | Nafn | Nafn | Nafn |
Nafn | Nafn | Nafn | Nafn | Nafn |
0,1 | 0,1 | 0,3 | 0,3 | 0,2 |
Þessi tillaga er einungis um kosninga- og talningaraðferðina og hefur ekki önnur áhrif á kosningalöggjöfina.
Frumvarpið er í efnisatriðum samhljóða frumvarpi sem Vilmundur Gylfason flutti á Alþingi í febrúar 1983, eða fyrir meira en þrjátíu árum. Möguleikar kjósenda til að hafa áhrif í kjörklefanum hafa lítt sem ekkert aukist hér á landi frá því sem þá var.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Um 2. gr.
Um 3. gr.
Um 4. gr.
Heildaratkvæðatala lista er fengin með því að leggja saman listaatkvæði hans og persónuleg atkvæði greidd frambjóðendum listans.
Úthlutun þingsæta, jafnt kjördæmissæta sem jöfnunarsæta, tekur mið af þessum atkvæðatölum. Þar breytir engu að atkvæðatölurnar eru ef til vill ekki heiltölur.
Um 5. gr.
Sætum lista er síðan útdeilt til frambjóðenda hans í þeirri röð sem ræðst af framangreindum atkvæðatölum frambjóðendanna.