Ferill 313. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1434  —  313. mál.
2. umræða.



Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stimpilgjald, nr. 138/2013 (afnám stimpilgjalds af skjölum varðandi eignayfirfærslu skipa).

Frá 2. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Annar minni hluti telur áform um breytingu á stimpilgjaldi af skjölum vegna eignayfirfærslu skipa undarlegt forgangsmál ríkisstjórnarinnar á tímum heimsfaraldurs og lækkandi tekna ríkissjóðs. 2. minni hluti tekur undir umsögn frá Félagi skipstjórnarmanna og sameiginlega umsögn Sjómannasambands Íslands og VM, félags vélstjóra og málmtæknimanna, um að afnám stimpilgjalds þegar skip koma í fyrsta skipti á íslenska skipaskrá komi vel til greina en ekki í hvert sinn sem skipum er flaggað út og inn af íslenskri skipaskrá eftir hentugleika.
    Afleiðingar þessarar breytingar geta orðið verulegar fyrir stöðu íslenskra sjómanna. Stöðu sjómanna ætti frekar að gæta að og styðja í stað þess að grípa til ráðstafana sem ógna atvinnuöryggi þeirra. Skýrt dæmi um slíkt er þegar íslensk skip eru skráð á Grænlandi en samkvæmt grænlenskum lögum er skylda að allir undirmenn á skipinu séu grænlenskir. Einnig eru slysatryggingar og kjarasamningsbundin réttindi sem sjálfsögð eru á íslenskum skipum ekki á skipum sem flaggað er til Grænlands.
    Verði frumvarpið að lögum má búast við að útflöggun skipa aukist með neikvæðum afleiðingum fyrir kjör íslenskra sjómanna og því leggst 2. minni hluti gegn samþykkt frumvarpsins og lýsir um leið undrun sinni á þessari forgangsröðun ríkisstjórnarinnar á tímum atvinnuleysis og óvissu.

Alþingi, 18. maí 2020.

Oddný G. Harðardóttir.