Ferill 371. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 760 — 371. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á þinglýsingalögum og lögum um skráningu og mat fasteigna (aflýsingar).
(Eftir 2. umræðu, 16. desember.)
I. KAFLI
Breyting á þinglýsingalögum, nr. 39/1978, með síðari breytingum.
1. gr.
2. gr.
a. Á eftir 1. málsl. kemur nýr málsliður sem orðast svo: Veðskuldabréf og tryggingarbréf skulu ávallt árituð um veðbreytinguna.
b. Í stað orðsins „handhafabréf“ í 2. málsl. kemur: þinglýsingu á skjali.
3. gr.
a. Við 1. mgr. bætist: eða aflýsing fer fram með rafrænni færslu.
b. Orðin „sbr. ákvæði til bráðabirgða II í lögum um aukatekjur ríkissjóðs“ í 2. mgr. falla brott.
II. KAFLI
Breyting á lögum um skráningu og mat fasteigna, nr. 6/2001, með síðari breytingum.
4. gr.
Í þeim tilvikum þegar kröfuhafi er ríkissjóður, opinber stofnun, banki, sparisjóður, lífeyrissjóður, tryggingafélag eða verðbréfasjóður ber kröfuhafa ekki, þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 24. gr., að greiða gjald fyrir vélrænar fyrirspurnir úr þinglýsingabók ef fyrirspurnin er nauðsynleg og í beinum tengslum við leiðréttingu á skráningu kröfuhafa og fyrir liggur þjónustusamningur við Þjóðskrá Íslands.
5. gr.