Ferill 322. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 457 — 322. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um kostnað ríkisins vegna sýnatöku vegna heimsfaraldurs COVID-19.
Frá Njáli Trausta Friðbertssyni.
1. Hver er kostnaður ríkisins vegna sýnatökupinna að meðaltali frá því að faraldurinn hófst, fyrir PCR-próf annars vegar og hraðpróf hins vegar?
2. Hver er heildarkostnaður ríkisins vegna sýnatökupinna frá því að faraldurinn hófst, fyrir PCR-próf annars vegar og hraðpróf hins vegar?
3. Hver er heildarkostnaður ríkisins vegna sýnatöku vegna COVID-19 frá því að faraldurinn hófst?
Skriflegt svar óskast.