Ferill 885. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1387 — 885. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um heimaþjónustu ljósmæðra.
Frá Jóhanni Páli Jóhannssyni.
1. Mun ráðherra beita sér fyrir breytingum á rammasamningi milli Sjúkratrygginga Íslands og ljósmæðra til að tryggja að heimaþjónusta ljósmæðra sé veitt öllum foreldrum og börnum fyrstu 10 dagana frá fæðingu óháð því hve lengi þau dvöldu á sængurlegudeild?
2. Hvaða breytingar verða gerðar, sbr. orð ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma 13. mars 2023, og hvenær taka þær gildi?
Skriflegt svar óskast.