Ferill 283. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 286 — 283. mál.
Fyrirspurn
til félags- og vinnumarkaðsráðherra um búsetuúrræði umsækjenda um alþjóðlega vernd.
Frá Ásmundi Friðrikssyni.
1. Hversu mörg hótel, fjölbýlishús, íbúðir og herbergi hafa verið leigð handa umsækjendum um alþjóðlega vernd á yfirstandandi ári? Svar óskast sundurliðað eftir mánuðum og sveitarfélögum.
2. Hver hefur verið kostnaður ríkisins mánuð hvern á yfirstandandi ári vegna leigu á búsetuúrræðum, öryggiseftirlits, umsjónar húsnæðis og kaupa og viðhalds á heimilistækjum og húsgögnum handa umsækjendum um alþjóðlega vernd?
3. Hver hefur verið meðalfjöldi fermetra á mann í þessum búsetuúrræðum mánuð hvern á yfirstandandi ári?
Skriflegt svar óskast.