Ferill 298. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 302 — 298. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um markvissa öflun gagna um líðan, velferð og efnahag eldra fólks.
Flm.: Ingibjörg Isaksen, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir, Ágúst Bjarni Garðarsson, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Jóhann Friðrik Friðriksson, Inga Sæland, Jakob Frímann Magnússon, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Tómas A. Tómasson, Oddný G. Harðardóttir.
Alþingi ályktar að fela félags- og vinnumarkaðsráðherra að útbúa mælaborð með það að markmiði að halda utan um og safna tölfræðilegum upplýsingum um líðan, velferð og efnahag eldra fólks og ná þannig fram heildarmynd af almennri stöðu aldraðra í samfélaginu svo hægt sé að forgangsraða verkefnum sem brýnt er að takast á við.
Greinargerð.
Í dag liggja ekki fyrir markvissar, samræmdar og tímanlegar upplýsingar um líðan, stöðu og velferð eldra fólks á hverjum tíma. Önnur lönd hafa sum hver sett upp rafræn mælaborð eða gagnvirkar heimasíður sem birta tölfræði um ýmsa þætti er varða eldra fólk, velferð þess og líðan. Meðal þess sem slíkar upplýsingaveitur varpa ljósi á eru fjöldatölur, kynjahlutfall í hverjum aldurshópi, hve margir búa einir eða með öðrum, í eigin húsnæði eða leiguhúsnæði, fjöldi og aldur þeirra sem leita á bráðamóttökur, fjöldi þeirra sem fá tiltekna aðstoð eða þjónustu hjá sveitarfélagi sínu og svo mætti lengi telja. Flutningsmenn telja mikilvægt að þessar upplýsingar séu teknar saman og settar fram með samræmdri framsetningu í rafrænu mælaborði. Með mælaborði sem þessu má svo greina líðan og velferð eldra fólks og ná fram heildarmynd af almennri stöðu aldraðra í samfélaginu með það að markmiði að beina sjónum stjórnvalda að þeim verkefnum sem brýnt er að takast á við og forgangsraða hverju sinni.
Flutningsmenn telja að með nýju rafrænu mælaborði um líðan og velferð aldraðra mætti gera ráð fyrir að almenningur, notendur og stjórnvöld hafi betra aðgengi að raunupplýsingum um það sem er að gerast og hvað kallar á rétta úrlausn samfélagsins á hverjum tíma.