Tekjuskattur og eignarskattur
Fimmtudaginn 22. desember 1988

     Albert Guðmundsson:
    Hæstv. forseti. Ég vil þakka utanrrh. fyrir svarið en mér þykir leiðinlegt ef enn þá einu sinni á að koma fyrir að fjmrh. svari ekki þegar hann er spurður. En ég vil þá upplýsa að sem fjmrh. þurfti ég að leita sömu ráða hjá þeim sérfræðingum sem fjmrn. hafði yfir að ráða og eftir að þeir höfðu kannað málið fékk ég þveröfugar upplýsingar við það sem hv. 1. þm. Norðurl. v. sagði að sérfræðingar ráðuneytisins hefðu gefið í dag.