Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 1 . mál.


Ed.

621. Breytingartillögur



við frv. til l. um verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóði.

Frá fjárhags- og viðskiptanefnd.



1.     Við 38. gr. Í stað orðsins „dómsrannsókn“ komi: opinber rannsókn.
2.     Við ákvæði til bráðabirgða bætist nýr töluliður sem verði 5. tölul. og orðist svo:
.      Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. þessara laga er viðskiptaráðherra heimilt, að fenginni umsögn prófnefndar, að veita þeim, er uppfylla skilyrði 4. gr. laga nr. 27/1986, tímabundið leyfi til verðbréfamiðlunar í átján mánuði, enda fullnægi viðkomandi öllum skilyrðum 3. gr. laga þessara. Heimilt er að framlengja þann frest um allt að sex mánuði ef sérstaklega stendur á.