Ferill 244. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 244 . mál.


Ed.

642. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 87/1985, um sparisjóði.

Frá 1. minni hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.



    Nefndin hefur athugað frumvarpið og kallað á sinn fund Baldvin Tryggvason frá Sambandi íslenskra sparisjóða, Tryggva Pálsson frá Verslunarbanka Íslands, Stefán Pálsson frá Sambandi íslenskra viðskiptabanka og Þórð Ólafsson frá bankaeftirliti Seðlabankans. Þá hefur nefndinni borist skrifleg álitsgerð um frumvarpið frá Sambandi íslenskra sparisjóða. Fyrsti minni hl. nefndarinnar leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim fjórum breytingartillögum sem birtar eru á sérstöku þingskjali. Þær breytingartillögur eru fluttar vegna athugasemda frá Sambandi íslenskra sparisjóða og kveða nánar á um kosningu sparisjóðsstjórna og ákvörðun vaxta og gjaldskráa sparisjóða.
    Ragnar Óskarsson var fjarverandi lokaafgreiðslu málsins.

Alþingi, 16. mars 1989.



Valgerður Sverrisdóttir,

Jóhann Einvarðsson.

Karl Steinar Guðnason.


fundaskr., frsm.







Prentað upp.