Ferill 35. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 35 . mál.


Ed.

978. Breytingartillaga



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 63 31. maí 1979, um skipan gjaldeyris- og viðskiptamála, með síðari breytingum.

Frá viðskiptaráðherra.



    Við 1. gr. Greinin orðist svo:
    1. og 2. mgr. 12. gr. laganna orðist svo:
    Ekki mega opinberir aðilar né einkaaðilar semja um að taka lán erlendis nema með samþykki ríkisstjórnar. Til lána telst í þessu sambandi hvers konar greiðslufrestur á þjónustu, svo og leigusamningar. Greiðslufrestur á vörum, sem innflytjandi tekur án ábyrgðar banka eða annarra fjármálastofnana, fellur ekki undir þetta ákvæði.
    Viðskiptaráðuneytið setur, að höfðu samráði við Seðlabankann, reglur um erlendar lántökur og um mörkin milli þeirra og greiðslufrests á vörum.