Ferill 204. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 204 . mál.


Ed.

1193. Nefndarálit



um frv. til l. um tekjustofna sveitarfélaga.

Frá meiri hl. félagsmálanefndar.



    Nefndin hefur komið saman á ný til að fjalla um frumvarpið eftir breytingu sem gerð var á því í meðferð neðri deildar. Meiri hl. nefndarinnar getur ekki fallist á breytingu neðri deildar og vísar í því sambandi til álits nefndarinnar á þskj. 765. Til að koma hins vegar til móts við sjónarmið neðri deildar flytur nefndin breytingartillögu á sérstöku þingskjali sem hún væntir að sé ásættanleg fyrir flesta aðila. Um orðalag þeirrar tillögu hefur verið haft samráð við Ævar Ísberg vararíkisskattstjóra.
    Breytingartillaga nefndarinnar miðar að því að taka af öll tvímæli um það að sú undanþága, sem lagt er til að mjólkurbú hafi frá greiðslu aðstöðugjalds, nái ekki til annarrar framleiðslu en mjólkurafurða. Undanskilin er því framleiðsla eins og ávaxtagrautar og vín sem nú er farin að tíðkast í sumum mjólkurbúum.

Alþingi, 16. maí 1989.



Margrét Frímannsdóttir,

Karl Steinar Guðnason,

Valgerður Sverrisdóttir.


form., frsm.

fundaskr.



Jóhann Einvarðsson.