Ferill 221. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 221 . mál.


Ed.

272. Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna.

(Lagt fyrir Alþingi á 112. löggjafarþingi 1989.)



1. gr.

    Við 6. gr. bætast fjórar nýjar málsgreinar, 5., 6., 7. og 8. mgr., er orðist svo:
    Þeir starfsmenn, sem eru félagar í hlutaðeigandi bæjarstarfsmannafélögum og gerast ríkisstarfsmenn 1. jan. 1990 á grundvelli laga um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, nr. 87 31. maí 1989, skulu eiga þess kost að vera áfram í sama stéttarfélagi sem fer þá með samningsumboð fyrir þeirra hönd við ríkið.
    Starfsmenn, sem koma til starfa eftir 1. jan. 1990, í þau störf sem lög um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, nr. 87 31. maí 1989, taka til, skulu jafnframt eiga val um hvort þeir verði félagsmenn í hlutaðeigandi bæjarstarfsmannafélagi eða hvort þeir óska að tilheyra því félagi ríkisstarfsmanna sem hefur samkvæmt lögum þessum samningsumboð fyrir viðkomandi starfsmenn.
    Hlutaðeigandi bæjarstarfsmannafélag skal hafa tilkynnt fjármálaráðuneytinu fyrir 15. jan. ár hvert, í fyrsta sinn fyrir 15. jan. 1990, hvaða starfsmenn það eru sem það fer með samningsumboð fyrir gagnvart ríkinu á grundvelli þessara laga.
    Hlutaðeigandi bæjarstarfsmannafélög hafa því aðeins samningsumboð gagnvart ríkinu fyrir starfsmenn skv. 5. og 6. mgr. þessarar greinar að tilkynningarskyldu hafi verið fullnægt skv. 7. mgr. þessarar greinar.

2. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. jan. 1990.


Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Með lögum um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, nr. 87 31. maí 1989, komu fljótlega í ljós ýmsir annmarkar á því er tekur til starfsmannamála. Fram kom mikil andstaða af hálfu Bandalags starfsmanna ríkis og bæja gegn því að þeir starfsmenn, er flyttust yfir til ríkisins á grundvelli ofangreindra laga, yrðu þvingaðir til þess að skipta um stéttarfélög. Ótti manna á landsbyggðinni við slík félagaskipti mun ekki hvað síst stafa af því að þeir telji að greind lög um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga séu aðeins undanfari frekari breytinga er fyrirhugaðar séu á sviði heilbrigðismála. Var þeirri skoðun haldið mjög á lofti að slíkar breytingar hefðu í för með sér hrun bæjarstarfsmannafélaga á landsbyggðinni með öllum þeim afleiðingum er slíkt kynni að hafa í för með sér. Sú breyting á lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna, nr. 94/1986, sem hér er lögð til, er sett fram til þess að koma til móts við ofangreind sjónarmið. Með 1. gr. þessa frumvarps er því tekin upp sú sérregla að starfsmenn, sem flytjast yfir til ríkisins 1. jan. 1990 á grundvelli laga um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, nr. 87 31. maí 1989, og þeir starfsmenn, sem munu gegna störfum þeirra eftirleiðis, geti valið um hvort þeir verði félagsmenn í hlutaðeigandi bæjarstarfsmannafélagi eða því félagi ríkisstarfsmanna sem hefur lögum samkvæmt samningsumboð fyrir viðkomandi starfsmenn. Gert er ráð fyrir að þeir starfsmenn, sem kjósa að vera áfram félagsmenn í hlutaðeigandi bæjarstarfsmannafélögum, myndi eins konar ríkisstarfsmannadeild innan þeirra.
    Gengið er út frá því að öll ákvæði laganna gildi um þessa nýju viðsemjendur ríkisins eftir því sem við getur átt, þar á meðal ákvæði um takmörkun verkfallsréttar ríkisstarfsmanna, tilkynningu vinnustöðvana, framkvæmd verkfalls o.s.frv. Í þessu felst því að einungis ríkisstarfsmenn innan bæjarstarfsmannafélaga eigi atkvæðisrétt í viðkomandi félagi um kjarasamning þess við ríkið og eigi rétt á að taka ákvörðun um boðun verkfalls gagnvart ríkinu.
    Þess skal getið að um ofangreinda breytingartillögu hefur náðst full samstaða við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, en það eru þau heildarsamtök opinberra starfsmanna sem lög um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga varða einna mest. Jafnframt skal þess getið að efni þessa frumvarps hefur verið kynnt Sambandi íslenskra sveitarfélaga og mun verða kynnt Bandalagi háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna.