Ferill 30. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 30 . mál.


246. Breytingartillögur



við frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1992.

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar (MB, GHH, RG, IBA, SP).



    Við 1. gr. Í stað „13.000 m.kr.“ komi: 13.150 m.kr.
    Við 3. gr.
         
    
    Í stað „4.545 m.kr.“ komi: 4.695 m.kr.
         
    
    Við greinina bætist nýr töluliður svohljóðandi: Fiskeldisfyrirtæki, allt að 150 m.kr.
    Við 4. gr.
         
    
    Í stað „6.650 m.kr.“ í 1. tölul. komi: 845 m.kr.
         
    
    7.–10. tölul. falli brott.
         
    
    Við bætist nýr töluliður er orðist svo: Ferðamálasjóður, allt að 130 m.kr., sbr. 27. gr. laga nr. 79/1985, um skipulag ferðamála, með síðari breytingum.
    Við 5. gr. Í stað 2. tölul. komi tveir nýir töluliðir er orðist svo:
         
    
    Hitaveita Akureyrar, allt að 356 m.kr. til skuldbreytingar eldri lána.
         
    
    Bæjarveitur Vestmannaeyja, allt að 21 m.kr. til skuldbreytingar eldri lána.
    Á eftir 5. gr. komi þrjár nýjar greinar svohljóðandi:
         
    
(6. gr.)
                            5. gr. laga nr. 44/1976, um Fiskveiðasjóð Íslands, með síðari breytingum, orðist svo:
                            Ríkissjóður beri eigi ábyrgð á þeim skuldbindingum sem Fiskveiðasjóður stofnar til eftir 31. desember 1991.
         
    
(7. gr.)
                            17. gr. laga nr. 76/1987, um Iðnlánasjóð, með síðari breytingum, orðist svo:
                            Ríkissjóður ber eigi ábyrgð á þeim skuldbindingum sem Iðnlánasjóður stofnar til eftir 31. desember 1991.
         
    
(8. gr.)
                            Heimilt er að afnema ábyrgð ríkissjóðs á nýjum skuldbindingum sem Iðnþróunarsjóður stofnar til eftir 31. desember 1991, enda sé leitað eftir staðfestingu ríkisstjórna Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um viðeigandi breytingu á samningi um norrænan iðnþróunarsjóð fyrir Ísland, sbr. lög nr. 9/1970, með síðari breytingum.
    Við 6. gr. (er verði 9. gr.). Greinin orðist svo:
                  Fjármálaráðherra er heimilt fyrir hönd ríkissjóðs að taka lán að hluta eða öllu leyti í stað þess að veita ríkisábyrgð á lántökur þeirra aðila sem tilgreindir eru í 2.–4. tölul. 4. gr. og í 5. gr. og endurlána til þeirra með þeim kjörum og skilmálum sem hann ákveður.
                  Erlendar lántökur þeirra aðila, sem tilgreindir eru í 1. mgr., og ríkissjóðs mega nema allt að 7.400 m.kr. á árinu 1992.
    Við 7. gr. Greinin falli brott.