Ferill 124. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 124 . mál.


387. Breytingartillaga



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 40 15. maí 1990, um Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins.

Frá sjávarútvegsráðherra.



    Við 8. gr. Orðin „svo og ákvæði til bráðabirgða II“ falli brott.

Greinargerð.


    Við 2. umr. málsins var samþykkt að ákvæði til bráðabirgða II í lögunum félli brott. Ákvæðið varðar endurskoðun laganna og er svohljóðandi:
    „Sjávarútvegsráðherra skal fyrir árslok 1992 láta endurskoða lög þessi. Hafa skal samráð við sjávarútvegsnefndir Alþingis og helstu hagsmunasamtök í sjávarútvegi við þá endurskoðun.“
    Yfirlýsingar hafa verið gefnar við umræðurnar um að sú endurskoðun, sem kveðið er á um í lögunum, muni fara fram og til frekari áréttingar er hér lagt til að bráðabirgðaákvæðið standi áfram í lögunum.