Ferill 349. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 349 . mál.


562. Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um verslunarálagningu.

Frá Svavari Gestssyni.



    Hverju nemur samkvæmt fyrirliggjandi áætlunum heildarálagning heildsöluverslunar, í krónum talin, á þessu ári, 1992?
    Hver er á sama hátt heildarálagning smásöluverslunar á þessu ári?
    Hvert er hlutfall verslunarálagningar samtals sem hlutfall af vergri landsframleiðslu?