Ferill 321. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 321 . mál.


593. Svar



viðskiptaráðherra við fyrirspurn Árna M. Mathiesen um auglýsinga- og kynningarkostnað viðskiptaráðuneytisins.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hver var auglýsinga- og kynningarkostnaður viðskiptaráðuneytis á árinu 1990 annars vegar og fyrstu fjóra mánuði ársins 1991 hins vegar?
    Hvaða aðilar fengu greiðslur vegna þessa kostnaðarliðar?
    Hversu háar voru greiðslurnar og hvenær voru þær greiddar?
    Fyrir hvað var greitt?
    Voru einhverjar reglur í gildi í ráðuneytinu varðandi þessi atriði?

    Í fyrirspurninni er spurt um hvort einhverjar reglur séu í gildi í ráðuneytunum varðandi þessi atriði. Ekki er um formlegar reglur að ræða, en brýnt er fyrir starfsmönnum að gæta fyllsta sparnaðar í þessu efni.



REPRÓ