Ferill 115. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


115. löggjafarþing 1991–1992.
Nr. 11/115.

Þskj. 1016  —  115. mál.


Þingsályktun

um eflingu ferðaþjónustu.


    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta gera athugun á því á hvaða stöðum framkvæmdir í ferðaþjónustu eru brýnastar og skila mestum árangri til að gera kleift að taka á móti fleiri erlendum ferðamönnum.
    Upplýsingarnar verði tiltækar þeim aðilum sem ráðast vilja í eða fjármagna þessi verkefni.

Samþykkt á Alþingi 18. maí 1992.