Tekjuskattur og eignarskattur

128. fundur
Mánudaginn 15. mars 1993, kl. 16:02:53 (6055)

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er að vísu ekki unnt að segja að þessi ræðuflutningur hv. 8. þm. Reykn. sé einsdæmi, en hann er með endemum. Einsdæmi er hann ekki vegna þess að hann hefur áður flutt slíkar ræður hér í þinginu. Ég vil að þessu sinni, virðulegi forseti, eingöngu ítreka það sem ég sagði hér áðan. Ég hef ekki gefið rangar yfirlýsingar um stöðu þessara mála á opinberum vettvangi, hvorki um það mál sem hér er sérstaklega nefnt af hv. 8. þm. Reykn. um málefni Iðnlánasjóðs og lánasjóða iðnaðarins. Þar hef ég hvergi skýrt frá öðru en rétt er og ég mun ekki una því að hv. þm. komi hér hvað eftir annað og haldi öðru fram. Ósannindamaðurinn þar er hv. 8. þm. Reykn.