Sementsverksmiðja ríkisins

152. fundur
Mánudaginn 05. apríl 1993, kl. 15:16:13 (6839)

     Iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég hlýt öðru sinni að árétta það sem ég sagði hér áðan. Mér virðist að hv. 9. þm. Reykv. sé að gera fjmrh. upp skoðanir. Fjmrh. sagði hér skýrt og greinilega: Að sjálfsögðu verður haft samráð við samtök opinberra starfsmanna um þetta mál. Hann áréttaði líka að löggjafarvaldið er hjá Alþingi. Hvort tveggja er þetta alveg morgunljóst eins og tíðkast að segja í flokki hv. 9. þm. Reykv. um slík mál þegar þau liggja jafnljóst fyrir og raun ber hér vitni.