Jarðhitaréttindi

28. fundur
Fimmtudaginn 08. október 1992, kl. 14:53:45 (1204)

     Iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil fyrir mitt leyti reyna að leiðrétta þann misskilning sem fram kom í máli hv. 4. þm. Austurl. eða ég ætti kannski öllu heldur að segja ofskilnings. Ég sagði ekki að það frv., sem ég hyggst flytja sem stjfrv., tengdist ekki samningnum um hið Evrópska efnahagssvæði sem fyrir þinginu liggur að ræða staðfestingu á, heldur sagði ég að frv. um Evrópskt efnahagssvæði væri ekki til umræðu í dag heldur frv. hv. 4. þm. Austurl. Hjörleifs Guttormssonar og fleiri um jarðhitaréttindi.