Verðlagning á raforku

39. fundur
Mánudaginn 26. október 1992, kl. 14:38:36 (1507)


     Iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að vitna í þetta bréf sem hv. 3. þm. Vesturl. vitnar til að hann segir orðrétt. Ég vil eingöngu láta það koma fram að það má vel vera að þessi hundraðstala af eigin fé Rafmagnsveitna ríkisins, sem hann las hér áðan, sé rétt reiknuð en það hefur ekki verið tekin um það ákvörðun að slíkri arðgreiðslu verði skilað í ríkissjóðs á næsta rekstrarári. Það fer eftir aðstæðum. Ég vil ítreka það sem ég sagði hér áðan að það fer eftir arðinum. (Gripið fram í.) Það stendur ekki í fjárlagafrv.