Útboð

42. fundur
Fimmtudaginn 29. október 1992, kl. 11:18:12 (1671)

     Iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) :
    Virðulegi forseti. Til þess að svara þessari fsp. vil ég gjarnan skýra frá því að í iðnrn. er verið að fjalla um drög að frv. til laga um útboð sem m.a. er byggt á tillögum sem Landssamband iðnaðarmanna hefur látið semja. Ég hef skipað nefnd með fulltrúum hagsmunasamtaka til þess að fjalla um þessi drög og ég býst við að þeirri umfjöllun verði lokið fyrir lok næsta mánaðar.