Ferill 79. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 79 . mál.


84. Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um vannýtta orku Landsvirkjunar.

Frá Jóni Helgasyni.



    Hefur iðnaðarráðuneytið gert úttekt á því hversu mikla orku umfram það sem Landsvirkjun selur nú væri hægt að selja til útflutnings- og samkeppnisiðnaðar ef hún væri seld á hliðstæðu verði og er í nálægum samkeppnislöndum okkar?