Ferill 261. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 261 . mál.


342. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 7/1975, um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd samþykkt um alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó, 1972, sbr. lög nr. 56/1986 og lög nr. 25/1990.

(Lagt fyrir Alþingi á 116. löggjafarþingi 1992.).



1. gr.


    1. gr. laganna orðast svo:
     Ríkisstjórninni er heimilt að staðfesta fyrir Íslands hönd samþykkt um alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó, 1972, sem undirrituð var í Lundúnum 20. október 1972.
     Ríkisstjórninni er enn fremur heimilt að staðfesta fyrir Íslands hönd breytingar á alþjóðareglunum sem gerðar voru í Lundúnum 19. nóvember 1981, 19. nóvember 1987 og 19. október 1989.
     Alþjóðareglurnar með áorðnum breytingum eru prentaðar sem fylgiskjal með lögum þessum.

2. gr.


    Í fylgiskjali með lögunum orðast d-liður 10. reglu svo:
  d.    1. Skip á ekki að sigla um strandleið þegar það getur með öryggi siglt eftir þeirri siglingaleið er við á í aðskilinni siglingaleið sem næst liggur. Þó mega skip, sem eru styttri en 20 metrar, seglskip og skip að fiskveiðum sigla um strandleiðina.
        2. Þrátt fyrir 1. gr. þessa liðar má skip sigla um strandleið þegar það er á leið til eða frá höfn, mannvirki eða byggingu á hafi úti, stöð hafnsögumanns eða hvaða öðrum stað sem er innan strandleiðar eða til að forðast yfirvofandi hættu.

3. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Með lögum nr. 7/1975 var ríkisstjórninni heimilað að staðfesta fyrir Íslands hönd samþykkt um alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó, 1972, sem gerð var í Lundúnum 20. október 1972. Samþykktin var fullgilt 21. apríl 1975 og öðlaðist gildi 15. júlí 1977, sbr. auglýsingar í C-deild Stjórnartíðinda nr. 6/1975 og 4/1977.
     Með lögum nr. 56/1986 var ríkisstjórninni heimilað að staðfesta breytingar á alþjóðareglunum sem gerðar voru í Lundúnum 19. nóvember 1981. Breytingarnar tóku gildi 1. júní 1983, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 4/1983. Með lögum nr. 25/1990 var ríkisstjórninni heimilað að staðfesta breytingar á alþjóðareglunum sem samþykktar voru í Lundúnum 19. nóvember 1987. Þær öðluðust gildi 19. nóvember 1989.
     Samkvæmt 2. gr. laga nr. 7/1975 hafa alþjóðareglurnar með áorðnum breytingum lagagildi hér á landi.
     Í samræmi við 6. gr. samþykktarinnar hefur verið unnið á vegum Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar að breytingum á alþjóðareglunum. Á 16. þingi stofnunarinnar voru í ályktun A.678(16) dags. 19. október 1989 gerðar þær breytingar á 10. reglu sem greinir í 2. gr. lagafrumvarps þessa. Þær öðluðust gildi 19. apríl 1991.
     Ríkisstjórnin telur rétt að breytingar þessar fái lagagildi hér á landi og fer því þess á leit að Alþingi samþykki frumvarp til laga þar að lútandi.
     Einstakar greinar frumvarpsins þarfnast ekki skýringa.



Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneytið,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 7/1975, um heimild fyrir


ríkisstjórnina til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd samþykkt um alþjóðareglur


til að koma í veg fyrir árekstra á sjó, 1972, sbr. lög nr. 56/1986 og lög nr. 25/1990.



    
Í frumvarpi þessu er fjallað um takmörkun á siglingum skipa eftir strandleiðum til að minnka hættu á árekstrum á sjó.
     Ekki verður séð að samþykkt frumvarpsins valdi kostnaðarauka fyrir ríkissjóð.