Ferill 337. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 337 . mál.


610. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.

Flm.: Árni R. Árnason.



1. gr.


    Á eftir orðunum „sem við á“ í 4. mgr. ákvæðis til bráðabirgða I, sbr. 23. gr. laga nr. 111/1992, um breytingar í skattamálum, (frádráttur vegna fjárfestingar í atvinnurekstri), kemur: svo og stofnfjárbréf í stofnsjóðum sparisjóða samkvæmt lögum um viðskiptabanka og sparisjóði.

2. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Í stjórnarfrumvarpi um viðskiptabanka og sparisjóði, 208. mál, þskj. 249, er lagt til að allir sparisjóðir verði stofnfjársjóðir með takmarkaðri ábyrgð. Stofnfé verði lagt fram af stofnendum sem verði eigendur stofnfjárhluta og verði ábyrgð hvers og eins takmörkuð við inngreidda stofnfjáreign þeirra. Starfandi sparisjóðum veitist þriggja ára frestur til að breyta samþykktum þannig að stofnfé komi í stað ábyrgða samkvæmt núgildandi lögum og fá stofnfjárframlög frá ábyrgðarmönnum eða öðrum í þeirra stað eða til viðbótar þeim.
    Með því frumvarpi er stefnt að eigin fjármögnun sparisjóða með sambærilegum hætti við eigin fjármögnun hlutafélagabanka, þ.e. með sama hætti og eigin fjármögnun almenningshlutafélaga.
    Í 15.–23. gr. þess frumvarps er m.a. kveðið á um rétt og takmörkun á rétti stofnfjárhluta, eða stofnfjárhlutabréfa, og stofnfjáreigenda. Er hann þar markaður með sambærilegum hætti og er um hlutabréf og hluthafa í hlutafélögum, í lögum um hlutafélög og í lögum um tekjuskatt og eignarskatt um skattalega meðferð hlutafjár, arðs og endurmats. Á það við um takmörkun ábyrgðar við inngreidda stofnfjáreign sem fyrr er nefnd, arð af innborguðu stofnfé, skattalega meðferð stofnfjár og arðs, endurmat og skattalega meðferð endurmats.
    Í því frumvarpi er hins vegar ekki ráðgert að stofnendur og aðrir, er leggi fram stofnfé í sparisjóði, fái heimild til að draga frá tekjum sínum vegna þeirrar fjárfestingar með sama hætti og heimilt er þeim sem leggja fram hlutafé í samvinnufélögum og hlutafélögum, þar á meðal viðskiptabönkum sem eru hlutafélög, þ.e. hlutafélagabönkum.
    Réttmætt virðist að sparisjóðum verði veitt sömu réttindi til að stofnfjáreigendur þeirra fái frádregna frá skattskyldum tekjum fjárfestingu í sparisjóðum eins og í hlutafélögum og samvinnufélögum og þannig opnaðir möguleikar til að afla eigin fjár með sölu stofnfjárbréfa er standist samkeppni við hlutabéf sem fjárfestingarvalkostur.