Ferill 427. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 427 . mál.


726. Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um pappírsnotkun þjóðarinnar.

Frá Gunnlaugi Stefánssyni.



    Hver er hlutur endurunnins pappírs í heildarpappírsnotkun þjóðarinnar að magni og kostnaði?
    Hyggst ráðherra beita sér fyrir sérstökum aðgerðum sem draga úr pappírsnotkun þjóðarinnar og auka notkun endurunnins pappírs?