Ferill 518. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 518 . mál.


875. Frumvarp til laga



um heimild fyrir ríkisstjórnina til að selja jörðina Lönguhlíð í Vallahreppi, Suður-Múlasýslu.

Flm.: Jón Kristjánsson, Egill Jónsson,

Gunnlaugur Stefánsson, Hjörleifur Guttormsson.


1. gr.


    Ríkisstjórninni er heimilt að selja Katrínu Ásgrímsdóttur og Gísla Guðmundssyni jörðina Lönguhlíð í Vallahreppi, Suður-Múlasýslu.
     Við söluna skal fylgt ákvæðum 3.–5. mgr. 38. gr. jarðalaga, nr. 65 31. maí 1976, sbr. lög nr. 90 30. maí 1984.

2. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Frumvarp þetta er flutt í samræmi við óskir hreppsnefndar Vallahrepps. Hjónin Gísli Guðmundsson og Katrín Ásgrímsdóttir keyptu íbúðarhús og útihús og jarðræktarframkvæmdir á jörðinni á árinu 1988. Hefðbundinn búskapur hefur verið lagður niður, en í stað þess hafa þau hafið uppbyggingu á gróðrarstöð sem þau hafa rekið á jörðinni. Nú þegar hefur verið ráðist í verulegar endurbætur á jörðinni og fyrirhugaðar eru umfangsmeiri framkvæmdir. Framkvæmdir þessar kalla á fjármagn og nauðsynlegt er að taka lán í því skyni. Ekki hefur fengist samþykkt að fá frekari heimildir til að veðsetja jörðina þar sem sú skylda hvílir á ríkinu að innleysa slíkar framkvæmdir ef ábúendur fara af jörðinni síðar meir og þar sem hluti af áætlaðri uppbyggingu er á landi skammt frá sem ekki tilheyrir jörðinni.
    Að mati sveitarstjórnar er besti kosturinn að núverandi ábúendur kaupi jörðina, en með því er ríkið leyst undan þeim skyldum sem eru samkvæmt jarðalögum um innlausn eigna. Hreppsnefnd Vallahrepps leggur á það áherslu að framkvæmdir geti haldið áfram á jörðinni í því skyni að tryggja búsetu núverandi ábúenda og styrkja atvinnulíf í sveitinni. Starfsemi garðyrkjustöðvarinnar í Lönguhlíð skapar jafnframt fleirum störf og því er mikilvægt að uppbyggingin geti haldið áfram.