Ferill 26. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 26 . mál.


943. Breytingartillaga



við frv. til l. um breyt. á tollalögum, nr. 55/1987, og lögum nr. 97/1987, um vörugjald, með síðari breytingum.

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar (VE, GuðjG, SP, IBA, SigG).



    Við 2. gr. Í stað orðanna „og skal þá miðað við mismun á því innlenda viðmiðunarkerfi er skilgreint er í bókun 3 og heimsmarkaðsverði“ í niðurlagi 1. mgr. komi: og skal þá miðað við mismun á verði hliðstæðrar vöru á heimsmarkaði og verði hinnar innlendu vöru eftir því sem við á hverju sinni.