Ferill 444. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 444 . mál.


1071. Nefndarálit



um frv. til l. um veitingu ríkisborgararéttar.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið sem er hið síðara um veitingu ríkisborgararéttar á þessu löggjafarþingi. Afgreiðsla málsins í nefndinni var með hefðbundnu sniði, formaður og einn nefndarmanna fóru yfir allar umsóknir til að kanna hvort þær uppfylltu þau skilyrði sem allsherjarnefnd hefur sett fyrir veitingu ríkisfangs, sbr. þskj. 910 frá 112. löggjafarþingi. Farið var yfir nýjar umsóknir og umsóknir er hlutu ekki afgreiðslu á haustþingi.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeirri breytingu sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.

Alþingi, 3. maí 1993.



Sólveig Pétursdóttir,

Anna Ólafsdóttir Björnsson.

Björn Bjarnason.


form., frsm.



Ey. Kon. Jónsson.

Ingi Björn Albertsson.

Jón Helgason.



Kristinn H. Gunnarsson.

Ólafur Þ. Þórðarson.

Sigbjörn Gunnarsson.