Ferill 363. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 363 . mál.


1106. Breytingartillögur



við frv. til l. um framkvæmd útboða.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



    Við 8. gr. Síðasti málsliður orðist svo: Kaupandi og allir viðstaddir bjóðendur eða fulltrúar þeirra skulu undirrita fundargerð og skal þeim afhent afrit hennar óski þeir þess.
    Við 14. gr. Á eftir orðinu „bjóðendum“ í síðari málsgrein komi: sem áttu lægri tilboð en það sem tekið var.
    Við 17. gr. Síðari málsliður falli brott.
    Við 19. gr. Á eftir orðinu „útboðsgögn“ komi: og tilboðið.