Ferill 127. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 127 . mál.


1184. Nefndarálit



um frv. til l. um lánskjör og ávöxtun sparifjár.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fékk hún á sinn fund frá fjármálaráðuneyti Indriða H. Þorláksson skrifstofustjóra og Snorra Olsen deildarstjóra. Umsagnir bárust frá BHMR, Neytendasamtökunum, Seðlabanka Íslands og Verslunarráði Íslands.
    Nefndin leggur til að í ljósi þeirrar yfirlýsingar um að væntanlegt sé stjórnarfrumvarp um verðtryggingu fjárskuldbindinga verði málinu vísað til ríkisstjórnarinnar.

Alþingi, 6. maí 1993.



Vilhjálmur Egilsson,

Rannveig Guðmundsdóttir.

Sólveig Pétursdóttir.


form., frsm.



Steingrímur J. Sigfússon.

Halldór Ásgrímsson.

Kristín Ástgeirsdóttir.



Ingi Björn Albertsson.

Guðjón Guðmundsson.

Jóhannes Geir Sigurgeirsson.